Leikjum í Meistarakeppni HSÍ í handknattleik karla og kvenna sem átti að fara fram næst komandi laugardag hefur verið flýtt fram til fimmtudags- og föstudagskvölds. Veðurspáinn fyrir laugardaginn er slæm og ljóst samkvæmt henni að mjög erfitt og jafnvel útilokað verði að ferðast á milli lands og Eyja.
Ákveðið hefur verið að Meistarakeppni HSÍ karla þar sem ÍBV og Afturelding mætast verði leikinn í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 31. ágúst og hefjist stundvíslega klukkan 17. Viðureign Vals og ÍBV í Meistarakeppni kvenna fer fram daginn eftir í Origohöll Vals, föstudaginn 1. september. Stefnt er á að dómarar leiksins gefi upphafsmerki á slaginu klukkan 17:30.
Leikirnir í Meistarakeppni HSÍ marka upphaf leiktíðarinnar ár hvert. Þar mætast Íslandmeistarar og bikarmeistarar síðasta keppnistímabils.
Keppni hefst í Olísdeild karla fimmtudaginn 7. september en tveimur dögum síðar í Olísdeild kvenna.
Leikjadagskrá Olísdeildanna er að finna hér.