Þýska handknattleiksliðið MT Melsungen, sem Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika með, tókst að snúa við taflinu í síðari viðureigninni við danska liðið Fredericia HK í kvöld og komast í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í handknattleik. Eftir sex marka tap í Danmörku fyrir viku, 35:29, vann Melsungen á heimavelli með níu marka mun, 35:26.
Hvorki Arnar Freyr né Reynir Þór skoruðu mark í sigurleiknum í Rothenbach Halle í Kassel. Melsungen var fimm mörkum yfir í hálfleik, 17:12.
Mohamed Amine Darmoul skoraði níu mörk fyrir Melsungen en Mads Kjeldgaard Andersen var atkvæðamestur leikmanna Fredericia HK með sjö mörk.
Einar Bragi skoraði fimm mörk
Einari Braga Aðalsteinssyni og liðsfélögum í IFK Kristianstad tókst ekki að vinna RK Nexe í Króatíu í kvöld. Heimamenn unnu sannfærandi sigur, 32:27, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 15:14. Nexe vann einnig viðureignina í Kristianstad Arena fyrir viku, 36:34.
Einar Bragi skoraði fimm mörk og var markahæstur ásamt Axel Månsson.
Í átta liða úrslitum mætast:
RK Nexe – THW Kiel.
Montpellier – Vardar.
Flensburg – Hannover-Burgdorf.
MT Melsungen – FC Porto.



