- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Misstu annan leikinn í röð niður í jafntefli á síðustu sekúndum

- Auglýsing -

Annan leikinn í röð tapaði TTH Holstebro í gærkvöld, undir stjórn Arnórs Atlasonar, stigi á síðustu sekúndum er liðið sótti HØJ Elite heim í gærkvöld í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Sænski landsliðsmaðurinn Hampus Wanne skoraði jöfnunarmark HØJ Elite á síðustu sekúndu eftir hraðaupphlaup, 28:28. Rétt áður hafði William Aar leikmaður TTH Holstebro tapað boltanum.


Mínútu fyrir leikslok var TTH Holstebro með tveggja marka forskot, 28:26.

Svipað átti sér stað þegar TTH Holstebro skildi með skiptan hlut á heimavelli Fredericia Håndboldklub fimmtudaginn fyrir rúmri viku.

Arnór segir í viðtali við Dagbladet Holstebro-Struer að hann sé vonsvikinn yfir að lið hans hafi ekki unnið sér inn sex stig í stað fjögurra í fyrstu þremur leikjunum eftir EM-hléið.

Jóhannes Berg Andrason skoraði ekki mark fyrir TTH Holstebro í gær.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -