- Auglýsing -
- Andrea Jacobsen og félagar í EH Aalborg unnu 12. leik sinn í röð í næst efstu deild danska handknattleiksins í gær. EH Aalborg vann Ejstrup-Hærvejen, 26:23, á heimavelli eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 10:11. Andrea skoraði ekki mark í leiknum. EH Aalborg er efst með 24 stig eftir 13 leiki en liðið tapaði fyrsta leiknum á leiktíðinni. Síðan hefur hver sigurleikurinn fylgt öðrum.
- Berta Rut Harðardóttir lék ekki með Holstebro þegar liðið vann Hadsten Håndbold, 28:24, á heimavelli í næst efstu deild danska handknattleiksins. Holstebro er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir EH Aalborg.
- Nikolaj Jacobsen þjálfari heimsmeistara Dana vinnur sem sjálfboðaliði við þjálfun barna í heimabæ sínum á Fjóni. Hann telur það ekki eftir sér og segir mikilvægt að taka þátt í sjálfboðaliðavinnu í kringum yngri flokka barna og unglinga.
- Sænski landsliðsþjálfari bandaríska landsliðsins á HM í handkattleik karla, Robert Hedin, fékk bláa spjaldið fimm mínútum fyrir leikslok í viðureign Bandaríkjanna og Marokkó í fyrstu umferð HM í fyrradag. Þetta var fyrsta bláa kortið sem sýnd er þátttakenda á HM.
- Hedin var of seinn að styðja á leikhléshnappinn sem olli því að hann rændi Marokkómenn hraðaupphlaupi. Dómarar leiksins hikuðu ekki við að útiloka Hedin frá leiknum. Óvíst var í gærkvöld hvort Hedin verður í banni í dag þegar bandaríska landsliðið mætir króatíska landsliðinu í 2. umferð í G-riðli í Jönköping.
- Auglýsing -