- Auglýsing -
- Ellen Karlsdóttir og Hekla Daðadóttir dæmdu í fyrsta sinn viðureign í Olísdeild kvenna á sunnudaginn þegar þeim fórst vel úr hendi að halda uppi röð og reglu í viðureign HK og Stjörnunnar í annarri umferð. Ellen og Hekla eru einu konurnar sem dæma í deildarkeppni Íslandsmótsins á keppnistímabilinu.
- Tékkneski markvörðurinn Tomas Mrkva hefur samið við Kiel frá og með næsta keppnistímabili. Mrkva leikur nú með Arnóri Þór Gunnarssyni hjá Bergischer HC. Tékkinn á að koma í stað Dario Quenstedt sem kveður herbúðir þýsku meistaranna um mitt næsta ár.
- Peter Johannesson sem nú er markvörður Lemgo kemur í stað Mrkva hjá Bergischer HC.
- Úkraínski handknattleiksmaðurinn Vladyslav Ostroushko hefur yfirgefið herbúðir BM Sinfin á Spáni og samið við Olympiacos í Grikklandi. Það væri e.t.v. ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að kappinn hefur verið afar laus í rásinni í gegnum tíðina og hefur nú samið við félagslið í 12 löndum á ferlinum. Ostroushko er 35 ára gamall og gekk til liðs við BM Sinfin í mars á þessu ári eftir að hafa verið í ár í Katar.
- Auglýsing -