- Auglýsing -
- Isaías Guardiola hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari þýska liðsins MT Melsungen sem Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika með á næstu leiktíð. Gurardiola gjörþekkir þýskan handknattleik en hann lék í Þýskalandi um langt árabil, m.a. með Rhein-Neckar Löwen og Lemgo. Guradiola er þar á ofan landi Roberto Garcia Parrondo þjálfara MT Melsungen. Finn Lemke verður áfram í þjálfarateymi félagsins.
- Þýskir fjölmiðlar gerða því skóna að danski landsliðsmarkvörðuinn Kevin Møller og leikmaður Flensburg gangi til liðs við GOG í Danmörku að ári liðnu. Møller er með gildandi samning við Flensburg til næstu tveggja ára en að hinn 35 ára gamli markvörður hafi í hyggju að flytja og heim og verði þar með leystur undan síðasta ári samningsins. Møller var einn traustasti markvörður þýsku 1. deildarinnar á nýliðinni leiktíð.
- Hvað sem Møller viðkemur er alveg víst að danski landsliðsmaðurinn Mads Mensah rær á ný mið næsta sumar eftir margra ára veru hjá Flensburg. Líklegt er talið að Mensah flytji heim til Danmerkur.
- Forráðamenn THW Kiel neita fregnum þess efnis að færeyski landsliðsmaðurinn Elias Ellefsen á Skipagøtu verði seldur til GOG í sumar eins og haldið hefur verið fram í dönsku fjölmiðlum.
- Metsala var í árskortum í gær danska úrvalsdeildarliðinu Fredericia HK þegar sala hófst fyrir næsta keppnistímabil. Góður árangur liðsins undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar síðustu ár er skýring á auknum áhuga fólks í Fredericia fyrir liðinu.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -