- Auglýsing -
- Hannes Jón Jónsson og lærisveinar hans í Alpla Hard töpuðu í gær fyrir grannliðinu Bregenz, 33:29, í undanúrslitum austurrísku bikarkeppninnar í handknattleik karla. Bregenz leikur þar með til úrslita við Handball Tirol sem vann Aon Fivers, 35:29, í hinni viðureign undanúrslita.
- Óskar Ólafsson skoraði fjögur mörk og Viktor Petersen Norberg þrjú þegar Drammen tapaði fyrir Arendal, 34:29, á heimavelli í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær.
- Hvorki Aron Dagur Pálsson né Orri Freyr Þorkelsson skoruðu mörk þegar Elverum vann Nærbö, 32:26, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var í Elverum.
- Anton Rúnarsson og Örn Vésteinsson Östenberg skoruðu tvö mörk hvor þegar Emsdetten gerði jafntefli á útivelli við Empor Rostock, 33:33, í þýsku 2. deildinni í handknattleik í gær. Emsdetten er í næst neðsta sæti þegar liðið á sjö leiki eftir en þrjú lið falla úr deildinni við lok keppnistímabilsins.
- Auglýsing -