- Auglýsing -
- “Ég ætla ekki að leika minn síðasta handboltaleik í tómri íþróttahöll. Það kemur ekki greina,” sagði Kiril Lazarov í gær þegar hann staðfesti að hann hafi hætt við að leggja keppnisskóna á hilluna í lok þessarar leiktíðar eins og til stóð.
- Lazarov segist hafa skrifað undir eins árs nýjan samning við Nantes. Félagið muni greina frá því á næstu dögum. Lazarov heldur áfram að leika með landsliði Norður-Makedóníu og vera landsliðsþjálfari samhliða. Hann verður þar með í eldlínunni á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar.
- Sebastian Heymann hefur framlengt samning sinn við Göppingen fram til ársins 2024. Heymann er 23 ára gamall og er bundnar miklar vonir við hann í framtíðinni og talað um hann sem eina helstu skyttu þýska landsliðsins á næstu árum.
- Herning-Ikast og Viborg mætast annarsvegar í undanúrslitum um danska meistaratitilinn í handknattleik kvenna og hinsvegar Odense Håndbold og Team Esbjerg. Þetta varð niðurstaðan eftir að átta liða úrslit deildarinnar voru leikin í tveimur fjögurra liða riðlum. Vinna þarf tvo leiki í undanúrslitum til þess að komast áfram í úrslit. Odense og Esbjerg mætast í fyrsta sinni 11. maí en daginn eftir leika Herning-Ikast og Viborg í fyrsta skipti.
- Auglýsing -