- Auglýsing -
- Handbolti.is óskar lesendum gleðilegs árs 2023 og þakkar fyrir lestur, hvatningu og stuðning á árinu sem var að líða.
- Elsa Karen Þorvaldsdóttir Sæmundsen leikmaður meistaraflokks Fjölnis/Fylkis í Grill 66-deildinni í handbolta var tilnefnd sem íþróttakona Fylkis.
- Ingvar Örn Ákason yfirþjálfari yngri flokka handknattleiksdeildarinnar hlaut silfurmerki Fylkis fyrir vel unnin störf í þágu deildarinnar og félagsins.
- Susan Ines Barinas Gamboa og Blær Hinriksson voru valin handknattleiksfólk ársins 2022 hjá Aftureldingu. Bæði voru heiðruð á uppskeruhátíð félagsins sem fór fram í Hlégarði 29. desember.
- Moritz Preuss kvaddi þýska meistarliðið SC Magdeburg um áramótið eftir þriggja og hálfs árs dvöl. Preuss hefur samið Leipzig og verður þar með lærisveinn Rúnars Sigtryggssonar á nýju ári. Samningur Preuss við Magdeburg átti að renna út í vor en hann komst að samningi við félagið um að losna strax þar sem Leizpig sýndi honum áhuga. Samningur Preuss við Leipzig gildir fram á mitt árið 2024.
- Þýska landsliðskonan Luisa Schulze gekk um áramótin til liðs við franska meistaraliðið Metz. Hún hefur samið við Metz til loka keppnistímabilsins í vor. Schulze kemur til félagsins frá Sport-Union Neckarsulm í nágrenni Stuttgart.
- Auglýsing -