- Franski landsliðsmaðurinn Valentin Porte hefur framlengt samning sinn við Montpellier til ársins 2024.
- Tatran Presov varð á sunnudaginn meistari í Slóvakíu í fjórtánda árið í röð í karlaflokki. Spennandi deildarkeppni þar að baki.
- Á laugardaginn varð RK Vojvodina serbneskur landsmeistari í handknattleik karla eftir sigur á Partizan, 28:20, í úrslitaleik. Þetta er níundi meistaratitill RK Vojvodina sem hefur jafnað metin við Rauðu stjörnuna og Partizan.
- Paris SG vann frönsku bikarkeppnina í karlaflokki á laugardaginn með fjögurra marka sigri á Montpellier í úrslitaleik, 30:26. Í kvennaflokki hrósuðu leikmenn Brest Bretagne sigri í bikarkeppninni. Brest vann Nantes, 37:33, í úrslitaleik.
- RK Vardar vann bikarkeppnina í karlaflokki í Norður-Makedóníu um helgina. Vardar vann RK Eurofarm Pelister, 26:24, í úrslitaleik.
- Spánverjinn Dani Gordo hefur verið ráðinn þjálfari Meshkov Brest frá og með næsta keppnistímabili. Portúgalinn Nuno Farelo verður Gordo til halds og trausts. Gordo tekur við af Raúl Alonso sem á dögunum var ráðinn íþróttastjóri þýska 1. deildarliðsins HC Erlangen. Gordo var í stuttan tíma landsliðsþjálfari Brasilíu frá árslokum 2019 fram undir vorið 2020.
- Portúgalskir tvíburabærður Kevynn og Oliver Nyokas hafa skrifað undir tveggja ára samning við RK Metalurg í Norður-Makedóníu. Kevynn leikur nú með Sporting Lissabon en Oliver er á mála hjá Nantes í Frakklandi.
- Auglýsing -