- Auglýsing -
- Nick Rasmussen þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Skanderborg AGF Håndbold, sem Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leikur með, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. Skanderborg AGF Håndbold hefur náð afar góðum árangri undir stjórn Rasmussen. M.a. situr liðið í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og er á góðu róli í Evrópudeildinni.
- Þýska 2. deildarliðinu TV Hüttenberg hefur verið dæmdur ósigur í leik við Tusem Essen vegna þess að liðið tefldi fram leikmanni sem ekki var gjaldgengur með liðinu. Hüttenberg hafði unnið leikinn með þriggja marka mun, 37:34.
- Í tilkynningu frá stjórnendum þýsku deildarkeppninnar kemur fram að Essen fái ekki stigin tvö skráð fyrr en dómsmál vegna atviksins hafi verið að fullu til lykta leidd.
- Danski hornamaðurinn Frederik Bjerre yfirgefur GOG í sumar og gengur til liðs við pólska meistaraliðið Wisla Plock. Bjerre hefur gert það gott á leiktíðinni og er m.a. þriðji markahæsti leikmaður Meistaradeildar Evrópu. Aðeins landi hans, Mathias Gidsel, og Frakkinn Elohim Prandi hafa skoraði oftar í leikjum keppninnnar.
- Í stað Bjerre hefur GOG samið við Svíann Lucas Pellas til næstu tveggja ára. Pellas kemur frá franska liðinu Montpellier.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -


