- Auglýsing -
- Ýmir Örn Gíslason og félagar í Rhein-Neckar Löwen komust örugglega í aðra umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik karla í gær þegar þeir unnu Spor Totor SK frá Ankara öðru sinni á tveimur dögum með miklum mun. Í gær skakkaði 20 mörkum, 42:22. Ýmir Örn skoraði ekki mark í gær en lét til sín taka í vörninni og var m.a. einu sinni vísað af leikvelli.
- Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten frá Sviss standa höllum fæti eftir sex marka tap fyrir Vojvodina frá Serbíu í fyrri viðureign liðanna í 1. umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik karla í gær, 26:20. Leikið var á heimavelli Vojvodina. Síðari leikurinn verður í Sviss um næstu helgi.
- Úkraínska meistaraliðið Motor Zaporozhye þar sem Roland Eradze er aðstoðarþjálfari og Gintaras Savykynas fyrrverandi leikmaður Aftureldingar og fleiri liða er aðalþjálfari, komst í gær í undanúrslit í Austur-Evrópudeildinni í handknattleik karla, SHEA-League, eftir 10 marka sigur á Presov frá Slóvakíu, 29:19. Motor mætir Vezsprém í undanúrslitaleik.
- Franska ungstirnið Yoann Gibelin hefur samið við PSG um að ganga til liðs við félagið á næsta sumri. Gibelin er 21 árs gamall en hefur verið fastamaður í liði US Creteil frá 17 ára aldri.
- Auglýsing -