Athygli vakti hversu harkalega varnarmenn andstæðinga íslenska landsliðsins á heimsmeistaramótinu, Slóvenar og Egyptar, fengu að komast upp með gegn Gísla Þorgeiri Kristjánssyni leikmanni íslenska landsliðsins án þess að súpa af því seyðið. Hvað eftir annað hafa varnarmenn gengið alltof langt í varnarleik sínum gegn sóknarákafa Gísla Þorgeirs.
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur reynt að benda dómurum á þessa grimmilega meðferð á Gísla Þorgeiri en aðeins uppskorið aðvörun og gul spjöld.
„Ég á ekki að þurfa að fara úr axlarlið til að fá víti og tvær. Ég á ekki að þurfa að taka eitthvað leikrit. Dómarinn á að sjá þetta,“ segir Gísli Þorgeir í samtali við mbl.is í gærkvöld.
Handbolti.is hefur tekið saman nokkrar myndir Hafliða Breiðfjörð ljósmyndara frá tveimur síðustu leikjum sem sýnir hörkuna sem Gísli Þorgeir hefur mátt þola, í flestum tilfellum án þess að varnarmenn hafa verið látnir hugsa ráð sitt í tveggja mínútna kælingu.