Íslendingar kvöddu Zagreb Arena í dag. Bæði leikmenn íslenska landsliðsins og stuðningsmenn sem settu sterkan svip á umgjörð allra leikja Íslands undir styrkri stjórn Sérsveitarinnar sem fyrir löngu er orðin ómissandi hluti af íslenska landsliðshópnum.
Leikurinn vð Argentínu vannst örugglega, 30:21. Það dugði ekki til því sex marka tap fyrir Króatíu á föstudagskvöld reyndist dýrt þegar upp var staðið. Ísland féll úr leik á markamun eftir fimm sigra í sex leikjum. Sennilega hefur Ísland aldrei náð eins háu sigurhlutfalli í lokakeppni HM en nú. Níunda sætið kemur í hlut íslenska landsliðsins þegar upp er staðið.
Hafliði Breiðfjörð myndaði stuðningsmenn íslenska landsliðsins á kveðjustundinni í Zagreb Arena í dag. Nokkrar myndanna er að finna hér fyrir neðan.
Fleiri syrpur Hafliða frá HM:
Myndasyrpa: Sól slær silfri á voga, sjáðu jökulinn loga
Myndasyrpa: Kátt var á hjalla þetta kvöld
Myndasyrpa: Stjarnan sem skærast skein
Myndasyrpa: Íslendingum í stuði fjölgar í Zagreb – treyjurnar runnu út
Myndasyrpa: Sigurstund í Zagreb Arena
Myndasyrpa: Sérsveitin er mætt og keyrir upp stuðið
Myndasyrpa: Rífandi góð stemning í stúkunni
Myndasyrpa: Samstíga stigu strákarnir stórt skref
Myndasyrpa: Fá að komast upp með að ganga ítrekað og harkalega gegn Gísla
Myndasyrpa: Landsliðið stutt með ráðum og dáð