Haukur Þrastarson lék lærisveina Rúnars Sigtryggssonar í HSG Wetzlar fremur grátt í kvöld. Hann skoraði 15 mörk í 14 marka sigri Rhein-Neckar Löwen, 41:27. Auk markanna 15 þá gaf Selfyssingurinn átta stoðsendingar. Víst má telja að leikmenn HSG Wetzlar hefðu reytt hár sitt og skegg í gremju yfir að koma engum böndum yfir Hauk ef ekki hefði harpix komið í veg fyrir slíkt háttarlag. Haukur sem fór svo gott með himinskautum í SAP Arena í Mannheim að viðstöddum 11.156 áhorfendum.
Haukur skoraði átta af mörkum sínum, 15 úr vítaköstum, og var með fullkomna skotnýtingu frá sjö metra línunni. Línumaðurinn Jannik Kohlbacher var eitt bros eins og stundum áður og skoraði sex mörk, flest eftir sendingar frá Hauki.
Staða Wetzlar er áfram alvarleg í næst neðsta sæti deildarinnar. Þar af leiðandi heldur lífróðurinn áfram.
Áfram í fjórða sæti
Gummersbach heldur áfram sigurgöngu sinni í þýsku 1. deildinni. Liðið vann öruggan sigur á Hannover-Burgdorf, 33:27, á heimavelli í kvöld. Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk og átti eina stoðsendingu fyrir Gummersbach. Teitur Örn Einarsson skoraði tvö mörk og var einu sinni vikið af leikvelli í tvær mínútur.
Gummersbach er í fjórða sæti deildarinnar, stigi fyrir ofan Kiel sem hefur auk þess leikið einum leik fleira. Þrjú stig skilja að Füchse Berlin og Gummersbach í þriðja til fjórða sæti.
Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach.
Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
Staðan:


