- Auglýsing -
ÍBV varð Íslandsmeistari í handknattleik karla í þriðja sinn í gærkvöld þegar lið félagsins lagði Hauka, 25:23, í fimmta og síðasta úrslitaleik liðanna. Stakkfullt hús var á leiknum og stemningin mikil. Gleði skein úr andlitum heimamanna strax og sigurinn var í höfn og skín væntanlega ennþá.
Þetta var í fyrsta sinn sem karlalið ÍBV vinnur einn af stóru bikurunum á heimavelli og því um sögulegan viðburð að ræða
Um leið og flautað var til leiksloka flykktust áhorfendur inn á leikvöllinn í Vestmannaeyjum og héldu þar áfram söng og dans sem vafalaust hefur staðið langt fram á nótt.
Hér fyrir neðan eru tvö myndskeið frá fögnuðinum í gærkvöld.
Allir út á gólfið.
Símar á lofti.
- Auglýsing -