- Auglýsing -
Grótta tryggði sér sæti í Olísdeild kvenna í handknattleik í kvöld eftir sex ára veru í Grill 66-deildinni. Grótta lagði Aftureldingu með eins marks mun, 22:21, í oddaleik í Mosfellsbæ.
Hér fyrir neðan er myndskeið af síðustu sókn Gróttu sem tókst að standast pressu varnarmanna Aftureldingar. Um leið og flautað var til leiksloka ærðust leikmenn Gróttu af fögnuðu.
- Auglýsing -