- Auglýsing -
Viktor Gísli Hallgrímsson var frábær í íslenska markinu í leiknum við Þjóðverja í gærkvöld á Evrópumótinu í handknattleik í Lanxess-Arena í Köln. Hann varði 13 skot, og var með rúmlega 34% hlutfallsmarkvörslu.
Ein af vörslum Viktors Gísla er á meðal þeirra fimm vöskustu í fyrstu umferð milliriðlakeppninnar, samkvæmt samantekt sem var á vegum Handknattleikssambands Evrópu, EHF.
Syrpuna með fimm bestu vörslum 1. umferðar milliriðlakeppninnar er að finna hér fyrir. Varsla Viktors Gísla er sú fjórða í röðinni.
- Auglýsing -