Stiven Tobar Valencia og samherjar í Benfica hófu keppni í 16-liða úrslitum riðlakeppni Evrópudeildarinnar af krafti í kvöld. Þeir lögðu HC Vardar, 40:35, í Lissabon. Stiven Tobar var næstmarkahæstur leikmanna Benfica með sex mörk.
Átta marka forskot í hálfleik
Benfica-piltar voru átta mörkum yfir í hálfleik, 24:16. Vardar-liðið byrjaði með látum og var yfir, 7:4, snemma leiks áður en vopnin snerust í höndum þeirra og Stiven og félagar hófu að leik við hvern sinn fingur. Leikurinn jafnaðist aðeins í síðari hálfleik en sigurinn var aldrei í hættu.
Benfica byrjaði keppnina án stiga. Þess vegna var sigurinn nauðsynlegur til þess að eiga möguleika á krækja í eitt af þremur efstu sætum í fjögurra liða riðli og öðlast þar með keppnisrétt í næstu umferð Evrópudeildarinnar. Þrjár umferðir eru eftir en leikið verður áfram næstu þriðjudaga.
Auk Benfica og Vardar eiga MT Melsungen og IFK Kristianstad sæti í riðli þrjú. MT Melsungen og IFK Kristianstad eigast við í kvöld.




