IK Sävehof, sem Elín Klara Þorkelsdóttir leikur með, er komið með fimm stiga forskot í efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna eftir níu marka sigur á Kristianstad HK, 36:27, í Kristianstad Arena í kvöld í 18. umferð af 22.
Elín Klara var markahæst hjá IK Sävehof með átta mörk, þar af eitt úr vítakasti. Einnig átti hún þrjár stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli. Elín Klara fékk hæstu einkunn leikmanna liðsins.
Berta Rut Harðardóttir skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad HK og gaf þrjár stoðsendingar.
Kristianstad HK er í níunda sæti af 12 liðum deildarinnar með 13 stig eins og Skuru sem er í áttunda sæti. Hallby er með 12 stig í 10. sæti og ljóst að hörð barátta er fram undan hjá liðunum að krækja í áttunda sætið og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina.
Staðan:


