Valur og ÍBV eru áfram tvö langefst í Olísdeild kvenna þegar 18. umferð af 21 er að baki. Valur vann öruggan sigur á Stjörnunni, 30:20, í Hekluhöllinni í dag og ÍBV vann Selfoss, 31:26.
ÍR-ingar hafa alls ekki lagt árar í bát í keppninni við Hauka og um þriðja sæti deildarinnar. ÍR lagði Fram með átta marka mun í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal, 34:26. ÍR-liðið sýndi allt annan og mun betri leik en þegar það sótti Fram heim á haustmánuðum.
Stóðu lengi vel í ÍBV
Neðsta lið Olísdeildar, Selfoss, átti í fullu tré við ÍBV í nærri 45 mínútur í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV skoraði fjögur mörk í röð á sex mínútna kafla og breytti stöðunni úr 23:22 í 27:22 þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Eftir þetta var víst hvorum megin sigurinn féll.
Hafdís varði helming skotanna
Hafdís Renötudóttir fór á kostum í marki Vals í enn eitt skiptið á leiktíðinni í dag þegar hún mætti ásamt samherjum sínum í Hekluhöllina til leiks við Stjörnuna. Hafdís varði annað hvert skot sem á markið barst, þar á meðal þrjú vítaköst.
Stjarnan skoraði fyrsta mark leiksins en eftir það tók Valur öll völd og svaraði með fimm mörkum. Í hálfleik var sex marka munur, 15:9.
Næstu leikir Olísdeildar kvenna fara fram laugardaginn 14. mars. Úrslit ráðast í bikarkeppninni í næstu viku. Eftir það taka við tveir landsleikir við Svartfellinga í undankeppni EM.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Úrslit dagsins og markaskorarar
Stjarnan – Valur 20:30 (9:15).
Mörk Stjörnunnar: Aníta Björk Valgeirsdóttir 4/4, Natasja Hammer 3, Sara Katrín Gunnarsdóttir 3, Þóra Hrafnkelsdóttir 3, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Vigdís Arna Hjartardóttir 2, Bryndís Hulda Ómarsdóttir 1, Rakel Dórothea Ágústsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 6, 28,6% – Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 5, 25%.
Mörk Vals: Þórey Anna Ásgeirsdóttir 6/4, Lovísa Thompson 4, Ágústa Rún Jónasdóttir 3, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 3, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Hildur Björnsdóttir 3, Laufey Helga Óskarsdóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 1, Auður Ester Gestsdóttir 1, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 1, Lilja Ágústsdóttir 1, Sara Lind Fróðadóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 15/3, 50%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Fram – ÍR 26:34 (10:17).
Mörk Fram: Harpa María Friðgeirsdóttir 6, Katrín Anna Ásmundsdóttir 5/1, Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín 4, Hulda Dagsdóttir 4, Ásdís Guðmundsdóttir 3, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 1, Sara Rún Gísladóttir 1, Silja Katrín Gunnarsdóttir 1, Valgerður Arnalds 1.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 7/1, 20,6% – Arna Sif Jónsdóttir 0.
Mörk ÍR: Matthildur Lilja Jónsdóttir 10, Sara Dögg Hjaltadóttir 10/3, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 5, Vaka Líf Kristinsdóttir 4, Dagbjört Ýr Ólafsdóttir 3, Katrín Tinna Jensdóttir 1, Solveig Lára Kjærnested 1.
Varin skot: Sif Hallgrímsdóttir 9, 27,3% – Ingunn María Brynjarsdóttir 2, 50%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
ÍBV – Selfoss 31:26 (16:13).
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 10/5, Birna Berg Haraldsdóttir 6, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 5, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Britney Emilie Florianne Cots 2, Klara Káradóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.
Varin skot: Ólöf Maren Bjarnadóttir 5/1, 25% – Amalia Frøland 4, 28,6%.
Mörk Selfoss: Marte Syverud 10/4, Eva Lind Tyrfingsdóttir 5, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 3, Hulda Hrönn Bragadóttir 3, Arna Kristín Einarsdóttir 2, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 2, Sylvía Bjarnadóttir 1.
Varin skot: Sara Xiao Reykdal 6, 16,2%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



