- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Óðinn Þór markahæstur í sigurleik í Evrópudeildinni

- Auglýsing -

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði níu mörk í kvöld þegar Kadetten Schaffhausen vann baráttusigur á danska liðinu Fredericia, 32:30, í fyrstu umferð af fjórum í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Leikið var í Middelfart Sparekasse Arena. Ólafur Örn Haraldsson var eftirlitsmaður EHF á leiknum.


Kadetten var þremur mörkum yfir í hálfleik, 15:12. Sigurinn var Óðni Þór og samherjum nauðsynlegur í keppninni um sæti í útsláttarkeppninni því bæði lið hófu keppni með tvö stig í farteskinu eftir riðlakeppni 32 liða úrslita sem lauk í byrjun desember.

Óðinn Þór var markahæstur hjá Kadetten ásamt Luka Maros.

Næstu þriðjudaga

Leikið verður áfram næstu þrjú þriðjudagskvöld en ásamt Fredericia og Kadetten eiga Hannover-Burgdorf og RK Nexe sæti í riðli fjögur. Efsta liðið kemst beint í átta liða úrslit en þau sem hafna í öðru og þriðja sæti fara í útsláttarkeppni um sæti í átta liða úrslitum.

Hannover-Burgdorf og RK Nexe mætast síðar í kvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -