Danski handknattleiksmaðurinn Mathias Gidsel var í dag valinn mikilvægasti leikmaður handknattleikskeppni Ólympíuleikanna. Gidsel hefur komið eins og stormsveipur inn í danska landsliðið og alþjóðalegan handknattleik á síðustu mánuðum.
Fyrir ári síðan hafði hann ekki leikið einn leik með A-landsliði Dana. Nú bíða stórlið Evrópu í röðum eftir að geta samið við Danann. Gidsel fékk tækifæri á heimsmeistaramótinu og segja má að síðan hafi hann nánast varla farið af leikvelli í einum einasta leik danska landsliðsins.
Gidsel er 22 ára gamall og fæddur í Skjern á Jótlandi. Hann lék með Skjern upp yngri flokka en færði sig yfir til GOG á Fjóni fyrir fjórum árum. Síðan hefur Gidsel vaxið og dafnað sem leikmaður. Hann varð bikarmeistari með GOG á síðasta haust og kom inn í danska landsliðið í ársbyrjun eins áður segir. Alls er landsleikirnir 22 og mörkin orðin 100. Þar af skoraði Gidsel 46 mörk í 57 skotum í átta leikjum á Ólympíuleikunum og varð næst markahæstur.
Úrvalslið Ólympíuleikanna: Markvörður: Vincent Gerard (Frakklandi). Hægra horn: Aleix Gomez (Spáni). Hægri skytta: Yahia Omar (Egyptalandi). Miðjumaður: Nedim Remili (Frakklandi). Vinstri skytta: Mikkel Hansen (Danmörku). Vinstra horn: Hugo Descat (Frakklandi). Línumaður: Ludovic Fabregas (Frakklandi). Markahæstur: Mikkel Hansen (61 mark). Mikilvægasti leikmaðurinn (MVP): Mathias Gidsel (Danmörku).
Markahæstur í sögunni
Hansen er einnig markahæsti leikmaður í sögu handknattleikskeppni Ólympíuleika með 165 mörk á fjórum leikum. Næstur á eftir er Yoon Kyung-Shin, Suður Kóreu. Hann skoraði 127 mörk á fimm leikum. Þar á eftir eru Nikola Karabatic, Frakklandi, og Talant Djushebaev, Spáni og Samveldinu, með 123 mörk hvor. Karabatic á fimm leikum en Djushebaev á fernum.
Í fimmta sæti er Guðjón Valur Sigurðsson með 119 mörk á þrennum leikum.