- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ólafur Brim bíður eftir leikheimild – veit ekki hvað veldur töfum

Ólafur Brim Stefánsson fyrir miðri mynd. Þjálfari MSK Povazska Bystrica er t.v. og forseti félagsins t.h. Mynd/Aðsend
- Auglýsing -

Ólafur Brim Stefánsson hefur ekkert leikið með slóvakíska liðinu MSK Povazska Bystrica sem hann samdi við fyrir rúmum mánuði. Samt er tvær umferðir að baki í úrvalsdeildinni í Slóvakíu og þeirri þriðju lýkur í dag. Við leit á félagaskiptavef HSÍ kemur nafn Ólafs hvergi fram en HSÍ verður að samþykkja og skrá öll félagaskipti íslensks handknattleiksfólks milli félaga erlendis jafnt sem innanlands.

Ólafur sagði við handbolta.is ekki hafa skýringu á því hvaða ljón eru í veginum fyrir að félagið gangi frá félagaskiptum og uppfylla samninginn sem skrifað hefur verið undir. Áður en Ólafur samdi við MSK Povazska Bystrica var hann á síðasta vetri með Al Yarmouk í Kúveit en var laus mála þar um mitt árið.

Ólafur sagði ennfremur að umboðsmaður hans væri að vinna í málinu. Á meðan æfir Ólafur ótrauður með félögum sínum í MSK Povazska Bystrica eins og ekkert hafi ískorist en fær því miður ekkert að leika með enda skortir leikheimild.

Meira en mánuður er liðin síðan félagið samdi við Ólaf og hann fór út með hraði til að stunda æfingar fyrir tímabilið enda lagði félagið áherslu á að hann kæmi strax. Vel var tekið á móti Ólafi en síðan virðist hafa dregist að hnýta alla enda af hálfu forráðamanna slóvakíska félagsins.

MSK Povazska Bystrica hefur farið vel af stað og unnið tvo fyrstu leiki sína í úrvalsdeildinni í Slóvakíu. Auk þess eru framundan leikir í annarri umferð Evrópubikarkeppninnar en MSK Povazska Bystrica sat yfir í fyrstu umferð sem hófst í gær og lýkur eftir viku.

Bærinn Povazska Bystrica er norðvestur af Bratislava og vestur af Kosice fyrir þá sem er staðkunnugir í Slóvakíu.

Uppfært: Samkvæmt upplýsingum frá HSÍ þá hefur sambandinu ekki borist tilkynning um félagaskipti Ólafs Brim. Hnífurinn stendur þar með ekki í kúnni hjá HSÍ.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -