KA-maðurinn Dagur Árni Heimisson leikmaður U17 ára landsliðs karla var í kvöld valinn í úrvalslið Opna Evrópumótsins sem lauk í dag en hófst á mánudaginn. Dagur Árni var valinn besta vinstri skyttan.
Dagur Árni, sem er af handknattleiksfólki kominn, lék stórt hlutverk í íslenska landsliðinu sem fyrr í dag hafnaði í fimmta sæti á mótinu eftir að hafa lagt Króata í framlengdum leik, 35:32, í Scandinavium íþróttahöllinni í Gautaborg.
Alls skoraði Dagur Árni 32 mörk í átta leikjum á mótinu og varð í 14. sæti yfir markahæstu leikmenn.
Ágúst Guðmundsson varð markahæstur íslensku piltanna með 39 mörk og hafnaði í fimmta sæti.
Foreldrar Dags Árna eru Martha Hermannsdóttir og Heimir Örn Árnason, þrautreynt handknattleiksfólk, svo piltur hefur ekki langt að sækja hæfileikana eða áhugann.