Sporting Lissabon, sem Orri Freyr Þorkelsson leikur með, og Janus Daði Smárason og liðsfélagar í Pick Szeged standa vel að vígi eftir að hafa unnið andstæðinga sína í fyrri leikjum útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í kvöld. Sporting lagði pólska meistaraliðið Wisla Plock, 33:29, í Lissabon og Szeged vann Industria Kielce frá Póllandi, 26:23. Janus Daði Smárason lék í fyrsta sinn með Szeged eftir nokkurra vikna fjarveru vegna axlarmeiðsla.
Orri Freyr skoraði sex mörk í níu skotum í sigrinum á Wisla Plock. Þrjú markanna skoraði Orri Freyr úr vítaköstum.

Gunnurinn að sigrinum var lagður í fyrri hálfleik þegar Sporting náði sjö marka forskoti, 19:12, áður en hálfleikurinn var úti. Mestur varð munurinn 10 mörk Sporting í hag snemma í síðari hálfleik áður en pólska liðinu tókst að snúa við undanhaldinu.
Francisco Costa skoraði 10 mörk fyrir Sporting og Martím Costa níu mörk.

Janus kom að fimm mörkum
Janus Daði skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar í sigurleiknum í Szeged en gleðilegt var að sjá hann leika með á ný. Staðan var jöfn í hálfleik, 11:11. Szeged-liðið var sterkara á endasprettinum.
Gekk á ýmsu í gær
Í gærkvöld vann One Veszprém átta marka sigur á PSG, 32:24, í fyrri leik liðanna í útsláttarkeppninni. Bjarki Már Elísson tók ekki þátt í leiknum vegna meiðsla sem hafa hrjáð hann undangengnar vikur.
Nantes vann síðan ævintýralegan sigur á GOG, 34:33, þegar leikið var í Danmörku. Leikmenn GOG fóru afar illa að ráði sínu. Þeir voru hvað eftir annað fimm mörk yfir í síðari hálfleik. Á lokakafla leiksins fór hins vegar allt í skrúfuna. Aymeric Minne skoraði sigurmark Nantes á síðustu sekúndu leiksins.
Síðari umferð útsláttarkeppninnar verður leikin í næstu viku. Sigurliðin fjögur tryggja sér sæti í átta liða úrslitum.



