Orri Freyr Þorkelsson skoraði þriðjung marka Sporting þegar liðið vann FC Porto, 33:30, í fyrstu viðureign liðanna í úrslitakeppni portúgalska handknattleiksins í kvöld.
Hætt er við að leikurinn, sem hófst 20 mínútum síðar en til stóð, dragi dilk á eftir sér. Megna stækju lagði af klór eða öðru ertandi efni í búningsklefa Sporting-liðsins. Þurfti þjálfari liðsins, Richardo Costa, og línumaður liðsins, kallaður Moga, að leita aðstoðar hjá lækni vegna óþægindi sem þeir fundi fyrir. Stýrði Costa ekki liðinu og Moga var ekki með í leiknum.
Fleiri kvörtuðu
Nokkrir aðrir leikmenn Sporting kvöruðu yfir óþægindum, m.a. í hálsi, en létu sig hafa það að taka þátt í leiknum sem sem hófst síðar en til stóð vegna þessarar óvæntu og óþægilegu uppákomu. Flestir leikmenn Sporting skiptu um fatnað og reimuðu á sig skóna fyrir utan klefann sem var lokað.
Orri Freyr fór á kostum eins og áður segir. Hann skoraði 11 mörk og var markahæstur leikmanna Sporting sem fara vel af stað í úrslitakeppninni. Francisco Costa var næstur með átta mörk og bróðir hans, Martim Costa, skoraði sex mörk.
Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Porto. Antonio Llamazares og Rui Silva voru markahæstir með fimm mörk hvor.



