- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Óvissa ríkir kringum hinn sænska Gottfridsson

- Auglýsing -

Sænski landsliðsmaðurinn Jim Gottfridsson hefur ekki verið í leikmannahópi ungverska liðsins Pick Szeged í undanförnum þremur leikjum. Aftonbladet í Svíþjóð segir Gottfridsson hafa leikið sinn síðasta leik þótt enn sé talsvert eftir af leiktíðinni og meira en ár eftir samningi Svíans við félagið. Aftonbladet telur að samningi Gottfridsson og Pick Szeged hafi verið rift.


Ekkert hefur þó verið staðfest, hvorki af hálfu félagsins né Gottfridsson sjálfum. Gottfridsson mun hafa verið við hestaheilsu og ekkert sem hamlar honum frá að leika handknattleik.

Það voru talsverð tíðindi á sínum tíma þegar Gottfridsson samdi við ungverska liðið eftir 12 ára veru hjá Flensburg í Þýskalandi. Tók samningurinn gildi síðasta sumar, hálfu öðru eftir að greint var frá vistaskiptunum. Var talið fullvíst að Gottfridsson myndi gera það gott hjá ungverska liðinu sem landi hans og landsliðsþjálfari Svía, Michael Apelgren, þjálfar. Þriðji Svinn, Jonas Källman, er aðstoðarþjálfari.

Ekki náð sér á strik

Gottfridsson hefur ekki náð sér á strik með Pick Szeged á leiktíðinni. Auk þess var hann heldur ekki í sama burðarhlutverki og áður hjá sænska landsliðinu á EM í upphafi ársins. Kom hann auk þess ekki mikið við sögu í vináttuleikjum Íslands og Svíþjóðar hér á landi í síðasta mánuði.

Uppfært: Skömmu eftir að fréttin var birt sendi Pick Szeged frá sér tilkynningu um að samkomulag hafi náðst á milli félagsins og Gottfridsson um að leiðir þeirra skildu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -