- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Óvíst að landsleikirnir við Svía fari fram í Höllinni

- Auglýsing -

Ekki er víst að vináttulandsleikir Íslands og Svíþjóðar í handknattleik karla í næsta mánuði fari fram í Laugardalshöll. Hin aldna þjóðarhöll innanhússboltaíþrótta er bókuð fyrir aðra viðburði þá viku sem áformað er að landsleikirnir fari fram, þ.e. í landsliðsvikunni frá 16. til 22. mars.

Þetta verða fyrstu vináttuleikir A-landsliðs karla hér á landi síðan í nóvember 2023 þegar færeyska landsliðið kom til landsins.

Unnið að lausn

Ásgeir Jónsson varaformaður HSÍ sagði við handbolta.is fyrir hádegið að framkvæmdastjóri HSÍ, Sólveig Jónsdóttir, ynni í að leysa úr málinu. Vísaði Ásgeir erindinu til framkvæmdastjóra.

Takist ekki að fá inni með landsleikina í Laugardalshöll herma heimildir handbolta.is að horft sé til þess að leika annað hvort í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum eða í N1-höllinni á Hlíðarenda.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -