- Auglýsing -
Óvíst er hvenær Jóhanna Margrét Sigurðardóttir leikur næst með Haukum. Hún fékk höfuðhögg í viðureign Hauka og Stjörnunnar í lokaumferð Olísdeildar fyrir rúmri viku og hefur alls ekki jafnað sig. Gat hún ekki tekið þátt í fyrsta leik Hauka og KA/Þórs í úrslitakeppni Olísdeildar í Kuehne+Nagel höllinni í gær.
„Ég fékk höfuðhögg í síðasta leik og er bara að taka einn dag í einu. Ég veit ekki hvort ég verði tilbúin í næsta leik,“ sagði Jóhanna Margrét við mbl.is í gær.
Næsta viðureign Hauka og KA/Þórs er ráðgerð á miðvikudagskvöld í KA-heimilinu.
Jóhanna Margrét skoraði flest mörk leikmanna Hauka í Olísdeildinni í vetur, 148 mörk í 21 leik og varð þriðja markahæst í deildinni.
- Auglýsing -


