Patrekur Stefánsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2026-2027.
Patrekur er 29 ára gamall leikstjórnandi sem einnig getur leikið sem skytta. Hann er uppalinn hjá KA og hefur leikið 127 leiki fyrir félagið auk 30 leikja með sameiginlegu liði Akureyrar handboltafélags á árunum 2013-2017.
„Patti hefur verið eins og áður segir í lykilhlutverki í KA liðinu undanfarin ár en auk þess er hann sterkur félagsmaður og er alltaf klár í að aðstoða við starfið í kringum félagið. Það er skýr stefna hjá félaginu að byggja á okkar gildum og byggja liðið upp á KA mönnum. Það er lykilskref í þeirri vinnu að halda Patta innan okkar raða og afar gott fyrir yngri leikmenn liðsins að geta sótt í þá miklu reynslu sem Patti býr yfir,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild KA í dag.