Haukar gjörsigruðu Fram, 35:27, í viðureign liðanna í Olísdeild kvenna í handknattleik í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld og settust í þriðja sæti, stigi fyrir ofan ÍR sem á leik til góða. Yfirburðir Hauka voru algjörir í síðari hálfleik og varð munurinn mestur 12 mörk, áður en Stefán Arnarson þjálfari Hauka tók að skipta helstu leikmönnum sínum af leikvelli. Fram situr í fimmta sæti með 17 stig, tveimur stigum á eftir en sigur Hauka í kvöld getur reynst dýrmætur í baráttunni um heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Aftur eftir tvær vikur
Fram sækir Hauka heim á nýjan leik eftir tvær vikur í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í undanúrslitum bikarkeppninnar.
13 mörk í 14 skotum
Landsliðskonan Rakel Oddný Guðmundsdóttir sló upp sýningu í leiknum. Hún skoraði 13 mörk fyrir Hauka, sjö eftir hraðaupphlaup. Hún missti aðeins mark í einu skoti. Þegar mörkin voru orðin 13 var hún kölluð af leikvelli.
Eftir að Fram hafði skorað tvö fyrstu mörkin tóku Haukar völdin. Þeir náðu yfirhöndinni og héldu henni til loka hálfleiksins þegar staðan var 19:16. Varnarleikur og markvarsla sat á hakanum hjá leikmönnum í fyrri hálfleik. Þeim mun meiri ákafi var í sóknarleiknum þar sem Rakel Oddný var frábær. Hún skoraði átta mörk í fyrri hálfleik, flest eftir hraðaupphlaup.
Byrjuðu með látum
Haukar byrjuðu með látum í síðari hálfleik. Staðan var 24:17, þegar aðeins tæpar fjórar mínútur voru liðnar. Haraldur Þorvarðarson þjálfari Fram tók þá leikhlé og talaði með tveimur hrútshornum yfir leikmönnum sínum sem virtust hreinlega ekki hafa áttað sig á því að síðari hálfleikur væri hafinn. Ekki tókst Haraldi að vekja leikmenn sína þrátt fyrir að hann brýndi raustina.
Sara Odden kom Haukum tíu mörkum yfir þegar tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum, 28:18. Ekki bætti úr skák fyrir Framliðið að hamur rann á Söru Sif Helgadóttur sem varði nánast allt sem á markið kom.
Staðan átti bara eftir að versna því Haukar náðu 12 marka forskoti um skeið. Ekki stóð steinn yfir stieini hjá Fram sem virtist vera með sitt öflugast lið í leiknum ef undan er skilinn Harpa María Friðgeirsdóttir.
Mörk Hauka: Rakel Oddný Guðmundsdóttir 13, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 5, Inga Dís Jóhannsdóttir 4, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 3, Sara Marie Odden 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Ragnheiður Ragnarsdóttir 2, Embla Steindórsdóttir 2, Birta Lind Jóhannsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 15/1, 46,9% – Elísa Helga Sigurðardóttir 2, 16,7%.
Mörk Fram: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín 5, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 5, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 4, Katrín Anna Ásmundsdóttir 4, Hulda Dagsdóttir 3/2, Ásdís Guðmundsdóttir 2, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 1, Sara Rún Gísladóttir 1, Íris Anna Gísladóttir 1, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 6, 31,6% – Ethel Gyða Bjarnasen 5/1, 18,5%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



