Stórleikur Reynis Þórs Stefánssonar dugði þýska liðinu MT Melsungen ekki þegar það sótti Vardar heim til Skopje í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Reynir Þór skoraði 12 mörk og gaf fimm stoðsendingar í fjögurra marka sigri Vardar, 37:33. Ekkert markanna skoraði Reynir Þór úr vítaköstum.
Voru marki yfir í hálfleik
Melsungen var marki yfir í hálfleik, 19:18. Liðið er áfram efst í riðli þrjú þegar tvær umferðir af fjórum eru að baki. Vardar og Benfica hafa fjögur stig. IFK Kristianstad rekur lestina með tvö stig.
Tefldi fram ungu liði
Roberto Parrondo þjálfari MT Melsungen ákvað að fara með ungt lið til Vardar og gefa reyndari mönnum frí vegna mikils álags. Arnar Freyr Arnarsson og Danis Kristopans voru á meðal fleiri reyndra leikmanna sem urðu eftir heima í Þýskalandi.
Jaka Malus skoraði 10 mörk fyrir Vardar og Vukašin Vorkapić var næstur með níu mörk.
Þorsteinn fór mikinn
Þorsteinn Leó Gunnarsson lét til sín taka og var markahæstur hjá FC Porto í mikilvægum sigri á Fraikin BM. Granollers, 29:27, á Spáni. Liðin eiga sæti í riðli tvö með Elverum og Skanderborg.
Þorsteinn Leó fór mikinn í fyrri hálfleik og skoraði þá fimm af sex mörkum sínum. M.a. skoraði Mosfellingurinn þrjú af fyrstu fimm mörkum Porto.
Sigurinn var nauðsynlegur fyrir FC Porto eftir tap fyrir Skanderborg á heimavelli fyrir viku. Með sigrinum í kvöld aukast möguleikar liðsins á að ná inn í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og helst ná a.m.k. öðru sæti riðilsins.
Úrslit allra leikja Evrópudeildar karla í kvöld er að finna í greininni hér fyrir neðan. Tvær umferðir eru eftir í riðlakeppni 16-liða úrslita.



