Reynir Þór Stefánsson var markahæstur leikmanna MT Melsungen er þeir unnu harðsóttar sigur á sænska liðinu IFK Kristianstad, 33:29, í Rothenbach Halle í Kassel í kvöld í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik. Reynir Þór skoraði sjö mörk en Arnar Freyr Arnarsson ekkert.
Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fimm mörk fyrir IFK sem var lengi vel með yfirhöndina í leknum. Melsungen-liðinu tókst að snúa við taflinu á síðustu 10 mínútum leiksins og skilja Kristianstad eftir í neðsta sæti riðilsins.
Axel Månsson var markahæstur hjá IFK með sex mörk.
Þorsteinn skoraði ekki í tapleik
Þorstreinn Leó Gunnarsson kom lítið við sögu og átti aðeins eitt markskot sem geigaði þegar FC Porto tapaði óvænt fyrir danska úrvalsdeildarliðinu Skanderborg í Pavilhao Dragao Arena í Porto í kvöld. Heimamenn voru yfir í hállfeik, 17:15. Þeir misstu leikmenn danska liðsins framúr sér þegar kom fram í síðari hálfleik og fengu ekki við neitt ráðið eftir það.
Magnus Andersson fer sér í engu óðslega varðandi Þorstein Leó. Hann er jafnt og þétt að komast í leikform en þarf sinn tíma eftir langa fjarveru frá leikvellinum vegna náratognuna í nóvember.
Vasco Costa skoraði níu mörk fyrir Porto. Emil Lærke og Jóhan Hansen skoruðu átta mörk hvor fyrir Skanderborg.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, lék ekki með Skanderborg. Hann er að jafna sig eftir aðgerð vegna kviðslits í síðasta mánuði.
Öruggt hjá Heiðmari
Heiðmar Felixson aðstoðarþjálfari Recken – TSV Hannover-Burgdorf fagnaði öruggum sigri á króatíska liðinu RK Nexe í Hannover í kvöld, 34:28. Hannover-liðið var með sjö marka froskot í hálfleik, 18:11.
Justus Fischer var markahæstur hjá Recken – TSV Hannover-Burgdorf með níu mörk. Maruis Steinhauser var næstur með sex mörk. Petar Krupic skoraði fimm fyrir Nexe-liðið.
Öll úrslit kvöldsins í Evópudeildinni, staðan í riðlunum og markaskor Íslendinga er að finna í greininni hér fyrir neðan.




