Því er haldið fram í SportBild í dag að Rúnar Sigtryggsson sé valtur í sessi á stóli þjálfara SC DHfK Leipzig og að forráðamenn félagsins hafi sett sig í samband við Danann, Nicolej Krickau sem varð að taka pokann sinn hjá Flensburg í desember. Síðan þá hefur Krickau verið orðaður við ýmis lið.
Rúnar tók við þjálfun SC DHfK Leipzig í nóvember 2022 og reif liðið upp úr botnbaráttu sem það var í á þeim tíma. Samningur Rúnars við SC DHfK Leipzig var framlengdur til ársins 2027 fyrir ári síðan. Á hinn bóginn eru skiptar skoðanir um það hvort frammistaða liðsins á núverandi tímabili sé viðunandi. Stefnt hafi verið á að vera meðal 10 efstu lið. Sem stendur er SC DHfK Leipzig í 12. sæti með 21 stig eftir 32 leiki af 34. Hamborg er í 10. sæti og með 12 stigum meira.
Ekki aðeins við Rúnar að sakast
Ekki er eingöngu við Rúnar að sakast þegar litið er til árangursins. Talsvert hefur verið um meiðsli í leikmannahópnum allt tímabilið auk þess sem félagið seldi einn sinn besta leikmann, Viggó Kristjánsson, til HC Erlangen í lok síðasta árs. Nokkuð sem kom mörgum spánskt fyrir sjónir.
Játa hvorki né neita
Samkvæmt frétt SportBild hafa stjórnendur SC DHfK Leipzig hvorki játað því né neitað orðrómnum um viðræður við Krickau.
„Rúnar er okkar þjálfari. Eftir tímabilið setjumst við niður og förum yfir tímabilið,“ er haft eftir Karsten Günther framkvæmdastjóra Leipzig í SportBild.
Nicolej Krickau náði framúrskarandi árangri hjá GOG í Danmörku áður en hann fór til Flensburg sumarið 2022. Flensburg vann Evrópudeildina fyrir ári en fljótlega eftir að núverandi leiktíð kólnaði samstarfið á milli Krickau og stjórnenda Flensburg sem lauk með að hann var leystur fyrirvaralaust frá störfum í desember.