- Auglýsing -
- Auglýsing -

Santos er mættur á ný til Ísafjarðar

Jhonatan C. R. Dos Santos hefur samið við Hörð til tveggja ára. Mynd/Hörður
- Auglýsing -

Brasilíski handknattleiksmaðurinn Jhonatan C. R. Dos Santos hefur samið á nýjan leik um að leika með Herði á Ísafirði í Grill 66-deildinni. Santos var með liðinu á síðustu leiktíð en hélt til síns heima í mótslok í vor. Var þá útlit fyrir að hann kæmi ekki til baka. Annað kom á daginn. Santos er mættur til leiks á ný og hefur skrifað undir tveggja ára samning.

Santos skoraði 51 mark í 17 leikjum með Herði í Grill 66-deildinni á síðasta tímabili. Talsverður hópur leikmanna hefur samið við Hörð fyrir tímabilið og er Santos sá síðasti af þeim.

Keppni í Grill 66-deild karla hefst á föstudaginn með viðureign Víkings og Þórs í Safamýri. Daginn eftir hefja Harðarmenn leik í deildinni þegar þeir sækja Fram2 heim í Lambhagahöllina í Úlfarsárdal klukkan 13.30. Tæplega viku síðari tekur Hörður á móti liði Selfoss í íþróttahúsinu á Torfnesi í 2. umferð deildarinnar.

Leikjdagskrá Grill 66-deilda.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -