- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sara Dögg er í hópnum fyrir landsleikina við Svartfellinga

- Auglýsing -

Sara Dögg Hjaltadóttir, markahæsti leikmaður Olísdeildar, er á meðal 18 leikmanna sem Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, valdi í landsliðshóp sinn vegna leikja við Svartfjallaland í undankeppni EM 4. og 8. mars.

Margir söknuðu Söru Daggar í landsliðshópnum sem tók þátt í HM. Arnar landsliðsþjálfari gaf skýringar á fjarveru hennar m.a. í viðtali við handbolta.is.


Miðasala á leiki Íslands og Svartfjallalands 4. mars.

Sautján af 18 leikmönnum hópsins voru í landsliðshópnum sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í lok nóvember og byrjun desember.

Vongóður um að Thea verði með

Athygli vekur að Thea Imani Sturludóttir er í landsliðhópnum en hún hefur ekki leikið með Val á árinu. Arnar sagði við handbolta.is að vonir stæðu til þess að Thea Imani verði klár í landsleikina.

Kátar landsliðskonur á heimsmeistaramótinu í desember. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Próf hjá Díönu Dögg

Arnar sagði enn fremur að fyrir lægi að Díana Dögg Magnúsdóttir geti aðeins tekið þátt í síðari leiknum við Svartfellinga ytra sunnudaginn 8. mars. Hún er á prófi í verkfræðinámi sínu í Þýskalandi á sama tíma og fyrri viðureignin verður háð á Ásvöllum 4. mars.

Gaf ekki kost á sér

Birna Berg Haraldsdóttir gaf ekki kost á sér í leikina af persónulegum ástæðum.

Íslenska landsliðið er án stiga í fjórða undanriðli EM eftir tap fyrir Færeyjum, 24:22, og Portúgal, 26:25, í október. Síðustu leikir undankeppninnar fara fram 8. og 12. apríl.

Landsliðshópurinn kemur saman til fyrstu æfingar mánudaginn 2. mars.

Landsliðið sem mætir Svartfellingum í fyrstu viku mars:

Markverðir:
Hafdís Renötudóttir, Valur, (77/5).
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (21/0).
Aðrir leikmenn:
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram (16/11).
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (66/116).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (19/44).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (72/97).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof (33/119).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (38/78).
Elísa Elíasdóttir, Valur (29/26).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (20/27).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (34/35).
Lovísa Thompson, Valur (37/70).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (7/1).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (10/6).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (45/185).
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (3/12).
Thea Imani Sturludóttir, Valur (98/224).
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (54/88).

Stöðuna í riðlunum er að finna hér:

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -