- Auglýsing -
- Auglýsing -

Selfoss og ÍBV unnu stórsigra í fyrstu umferð

Hulda Hrönn Bragadóttir skoraði þrjú mörk fyrir lið Selfoss í kvöld. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -

Olísdeildarliðin ÍBV og Selfoss unnu andstæðinga sína, Víking og FH, örugglega í fyrstu umferð Ragnarsmótsins í handknattleik kvenna í Sethöllinni á Selfossi í kvöld. Selfoss, sem endurheimti sæti sitt í Olísdeildinni í vor eftir yfirburðasigur í Grill 66-deildinni, var með töluverðt forskot frá upphafi til enda gegn FH-ingum.

Katla María Magnúsdóttir landsliðskona, sem meiddist alvarlega á ökkla í undanúrslitaleik Poweradebikarsins í byrjun mars var á leikskýrslu hjá Selfossi í kvöld. Hún lék talsvert með í vörninni og skoraði úr þremur vítaköstum.

Talsvert breytt lið ÍBV frá síðustu leiktíð vann Víkinga nokkuð örugglega með 11 marka mun. Britney Cots lék með ÍBV í fyrsta sinn síðan hún sleit hásin í Evrópuleik síðasta haust. Cots, ásamt nokkrum yngri leikmönnum, setur sterkan svip á ÍBV liðið um þessar mundir eftir brotthvarf nokkurra leikmanna í sumar.

Næstu leikir Ragnarsmótsins fara fram í Sethöllinni á Selfossi á fimmtudaginn. ÍBV mætir FH klukkan 18 og Selfoss og Víkingur eigast við klukkan 20.15.

Leikjadagskrá Olísdeilda.

Úrslit kvöldsins

Selfoss – FH 41:20 (19:10).
Mörk Selfoss: Perla Ruth Albertsdóttir 9, Harpa Valey Gylfadóttir 5, Sara Dröfn Rikharðsdóttir 5, Arna Kristín Einarsdóttir 4, Hulda Hrönn Bragadóttir 3, Katla María Magnúsdóttir 3/3, Inga Sól Björnsdóttir 3, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 3, Inga Dís Axelsdóttir 3, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir 1, Sylvía Bjarnadóttir 1, Cornelia Hermansson 1.
Varin skot: Ágústa Tanja Jóhannsdóttir 9, Cornelia Hermansson 4.
Mörk FH: Hildur Guðjónsdóttir 7, Karen Hrund Logadóttir 4, Fanney Þóra Þórsdóttir 3, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 2, Telma Medos 1, Sara Björg Davíðsdóttir 1, Aníta Björk Valgeirsdóttir 1, Eva Gísladóttir 1.
Varin skot: Bára Björg Ólafsdóttir 2, Sigurdís Sjöfn Freysdóttir 1.

ÍBV – Víkingur 27:16 (14:7).
Mörk ÍBV: Dagbjört Ýr Ólafsdóttir 8, Birna Berg Haraldsdóttir 6, Birna María Unnarsdóttir 4, Sunna Jónsdóttir 3, Britney Emilie Florianne Cots 2, Þóra Guðný Arnarsdóttir 2, Karolina Anna Olszowa 1, Herdís Eiríksdóttir 1.
Varin skot: Marta Wawrzynkowska 8, Ólöf Maren Bjarnadóttir 4.
Mörk Víkings: Hafdís Shizuka Iura 6, Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir 3, Ída Bjarklind Magnúsdóttir 3, Valgerður Elín Snorradóttir 2, Brynhildur Eva Thorsteinson 1, Ester Inga Ögmundsdóttir 1.
Varin skot: Signý Pála Pálsdóttir 8, Anna Vala Axelsdóttir 4.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -