Annar leikmaður hefur yfirgefið herbúðir Harðar á Ísafirði á fáeinum dögum. Félagið greindi frá því að örvhenta skyttan Dorde Colovic hafi kvatt félagið af persónulegum ástæðum. Colovic, sem kom til Harðar í sumar, lék fimm leiki í Grill 66-deildinni og skoraði í þeim 23 mörk.
Colovic, sem er Serbi, er hokinn reynslu og hafði m.a. leikið með Dinamo Pancevo, Vranje, RK Goc Merkur og Agro Topolcani í Slóvakíu áður en hann gekk til liðs við Hörð í sumar.
Í upphafi vikunnar ákvað gríski landsliðsmaðurinn Christos Kederis að róa á ný mið eftir skamma veru á Ísafirði.
Tveir leikir á næstu dögum
Hörður á heimaleik við HK2 í Grill 66-deildinni annað kvöld og tekur síðan á móti KA í 16-liða úrslitum í Poweradebikarnum á miðnætti á sunnudaginn eftir því fram kemur á heimasíðu HSÍ. Slæmt veðurútlit gæti sett strik í reikninginn.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.