- Auglýsing -
Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við Sigtrygg Daða Rúnarsson um framlengingu á samningi hans til næstu tveggja ára.
Sigtryggur Daði, sem er 27 ára gamall, hefur verið einn af lykilleikmönnum liðsins síðustu ár og varð Íslandsmeistari með liðinu í fyrra. Hann kom til ÍBV fyrir fjórum árum eftir að hafa leikið í Þýskalandi frá unglingsaldri með EHV Aue, HBW Balingen-Weilstetten og Vfl Lübeck-Schwartau.
„Við erum gríðarlega ánægð með að semja við Sigtrygg og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ segir í tilkynningu frá ÍBV.
- Auglýsing -