- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sigurganga Gummersbach heldur áfram

- Auglýsing -

Sigurganga Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handknattleik á árinu hélt áfram í kvöld þegar liðið lagði Bergischer HC, 39:30, í Mitsubishi Electric Halle í Düsseldorf. Með sigrinum treysti Gummersbach stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar. Liðið er aðeins tveimur stigum á eftir Flensburg sem situr í öðru sæti þegar átta umferðir eru eftir óleiknar.


Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach og gaf eina stoðsendingu. Teitur Örn Einarsson skoraði einu sinni.

Julian Köster og Milos Vujovic skoruðu átta mörk hvor og voru markahæstir leikmanna Gummersbach.

Eloy Morante Maldonado skoraði sjö mörk fyrir Bergischer:

Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach og Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari Bergischer HC ásamt Markus Pütz.

Eitt stig hjá Rúnari

Rúnar Sigtryggsson og liðsmenn hans í HSG Wetzlar fengu annað stigið úr viðureigninni við Stuttgart á heimavelli, 31:31. HSG Wetzlar er áfram í næst neðsta sæti en hefur nú 11 stig.

Tristan Kirschner og Dominik Mappes skoruðu sjö mörk hvor fyrir Wetzlar. Lenny Rubin skoraði átta mörk fyrir Stuttgart.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -