Sigvaldi Björn Guðjónsson var í morgun skráður til leiks með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í handknattleik karla, fyrir úrslitaleikinn við Króata um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í dag. Má leiða líkum að því að þetta sé gert til þess að tefla Sigvalda Birni fram í leiknum mikilvæga sem hefst klukkan 14.15 í Jyske Bank Boxen í Herning.
Sigvaldi Björn var kallaður til móts við íslenska hópinn í Herning á fimmtudaginn en var ekki skráður inn fyrir undanúrslitaleikinn gegn Dönum á föstudaginn og mátti þar af leiðandi ekki vera með í viðureigninni.
Um leið og Sigvaldi Björn var skráður til leiks var nafn Andra Más Rúnarsson fjarlægt af lista leikmanna Íslands hjá mótsstjórn, samkvæmt tilkynningu í tölvupósti frá EHF í morgun.


