- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sjö marka tap fyrir gamla liði Hákons Daða

- Auglýsing -

Elmar Erlingsson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar þegar lið hans, Nordhorn-Lingen, tapaði á heimavelli fyrir Eintracht Hagen, 28:21, í næstefstu deild þýska handknattleiksins í dag. Mikill áhugi var fyrir leiknum en liðlega þrjú þúsund áhorfendur lögðu leið sína í Emsland Arena.


Hagen, sem Hákon Daði Styrmisson lék með um árabil og allt til síðustu áramóta, tók völdin í leiknum í síðari hálfleik og fékk aðeins á sig níu mörk en skoraði fimm mörkum meira. Hákon Daði leikur nú undir stjórn föður Elmars, Erlings Richardssonar, hjá ÍBV.

Þrátt fyrir tapið er Nordhorn einu sæti fyrir ofan Hagen í deildinni. Norhorn er í 5. sæti með 27 stig en Hagen í sjötta sæti með 25 stig.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -