Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna mætir færeyska landsliðinu í næstsíðustu umferð undankeppni EM 2026 í þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir, í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið en sigur færir þau skrefi nær sæti í lokakeppni mótsins sem fram fer í fimm löndum frá 3. til 20. desember.
Leikurinn Við Tjarnir í kvöld verður sjötti leikur kvennalandsliða Íslands og Færeyja tveimur og hálfu ári.
Á morgun eigast við hin tvö lið riðilsins, Portúgal og Svartfjallaland, í Matosinhos í úthverfi Porto.
Síðast mættust landslið Íslands og Færeyja í milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins 2025 í Düsseldorf 6. desember. Ísland vann 33:30 í hörkuskemmtilegum leik. Hér fyrir neðan eru úrslit í síðustu leikjum Íslands og Færeyja. Þar fyrir neðan er staðan í riðlinum og leikirnir sem eftir eru:
Undankeppni EM 2024:
15.10.2023: Færeyjar – Ísland 23:28 (12:11).
07.04.2024: Ísland – Færeyjar 24:20 (12:8).
Vináttuleikur í Þórshöfn:
22.11.2025: Færeyjar – Ísland 28:25 (13:11).
HM kvenna 2025:
06.12.2025: Færeyjar – Ísland 30:33 (14:16).
Undankeppni EM 2026:
15.10.2025: Ísland – Færeyjar 22:24 (11:11).
08.04.2026: Færeyjar – Ísland ???
Staðan í riðlinum:
| Sv.fjallaland | 4 | 3 | 0 | 1 | 121:100 | 6 |
| Færeyjar | 4 | 2 | 0 | 2 | 98:100 | 4 |
| Portúgal | 4 | 2 | 0 | 2 | 94:102 | 4 |
| Ísland | 4 | 1 | 0 | 3 | 99:110 | 2 |
Tvö efstu lið riðilsins komast áfram. Einnig er möguleiki á að liðið sem hafnar í þriðja sæti öðlist sæti í lokakeppninni EM. Undankeppnin er leikin í sex fjögurra liða riðlum fá fjórar þjóðir af sex með bestan árangur í þriðja sæti farseðil i lokakeppnina.
Næstu leikir:
8. apríl: Færeyjar – Ísland, kl. 18 – útsending á RÚV.
9. apríl: Portúgal – Svartfjallaland.
12. apríl: Ísland – Portúgal, kl. 16.
12. apríl: Svartfjallaland – Færeyjar.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja



