- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Small allt saman hjá okkur um helgina

- Auglýsing -

c

„Æfingavikan var mjög góð hjá okkur og sjálf hef ég æft mjög vel eins og hinar stelpurnar. Þetta bara small allt saman hjá okkur um helgina. Við erum rosalega sáttar við það,“ sagði Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik í samtali við handbolta.is eftir annan sigur íslenska landsliðsins á Pólverjum á jafnmörgum dögum á Selfossi í dag, 28:24.

Ógeðslega sterkt

„Við töluðum saman um það fyrir leikinn að leggja allt í sölurnar í dag og sýna fram á að sigurinn í gær hafi ekki verið heppni. Það er ógeðslega sterkt hjá okkur að vinna leikinn á sannfærandi hátt annan daginn í röð og allir stóðu sig ótrúlega vel.

Frammistaðan í dag og í gær er frábær og við getum gengið stoltar af velli,“ sagði Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik í samtali við handbolta.is í Sethöllinni.

Lengra myndskeiðsviðtal er við Andreu efst í þessari frétt.

„Þetta er stórt framfaraskref“

Sigrinum í gær var fylgt eftir með öðrum sigri á Pólverjum

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -