- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sneri til baka eftir tveggja ára þrautagöngu

- Auglýsing -

Norski landsliðsmaðurinn Gøran Johannessen sneri til baka út á leikvöllinn með Kolstad síðasta laugardag eftir nærri tveggja ára fjarveru vegna meiðsla og fylgikvilla.

Í apríl 2024, rétt fyrir forkeppni Ólympíuleikanna, slitnaði hásin hans á æfingu. Fjórum mánuðum síðar slitnaði hún aftur. Það var upphafið að þrautagöngu sem einkenndist af fylgikvillum, sýkingum og óvissu.

Hélt að ferilinn væri á enda

„Það hafa verið tímabil þar sem ég hef hugsað að nú væri ferillinn á enda. Það hefur verið mikil óvissa, sérstaklega með sýkingarnar. Í upphafi endurhæfingarinnar byrjaði ég á æfa mig í að ganga eins og maður. Eftir það fór ég að hlaupa og síðan að hoppa og stökkva. Þegar það var í höfn fór ég prófa mig áfram í handbolta,“ segir Johannessen sem skoraði eitt mark í þann skamma tíma sem hann lék með Kolstad í fyrsta leik sínum með liðinu í nærri tvö ár á laugardaginn.

Endurteknar sýkingar

Auk þess að hásinin slitnaði tvisvar sinnum urðu endurteknar sýkingar til þess að hann varði næstum þremur mánuðum á sjúkrahúsi í meðferð með lyfjum í æð.

„Allt ferlið hefur verið frekar súrrealískt, frá því það hófst og til dagsins í dag, með fjórum bakslögum. Þetta hefur verið ótrúlega erfitt. Ég er ótrúlega stoltur af vinnunni sem ég hef lagt andlega og líkamlega,“ segir Johannessen.

Andlega erfitt

Johannessen fer ekki í greafgötur með að erfiðast hafi verið að fást við andlegu hliðina.

„Ég trúi því að ég geti orðið góður handboltamaður aftur. Það mikilvægasta er að ég haldi áfram að vinna vel á æfingum, í styrktarsalnum og andlega,“ segir Gøran Johannessen handknattleiksmaður.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -