Spánverjanum Jose Ignacio Prades entist stutt í starfi landsliðsþjálfara Serbíu í kvennaflokki í handknattleik. Hann var ráðinn í ágúst á síðasta ári og lagði upp með göfug markmið og uppbyggingu á kvennalandsliði sem mátti mun sinn fífil fegri þegar kom að árangri á undanförnum stórmótum. Tólfta sæti á HM undir lok síðasta árs þótti ekki viðunandi og nú hefur Prades verið skipað að taka pokann sinn.
Við starfi hans tekur Sandra Kolaković, fyrrverandi landsliðskona. Hún þekkir að sögn vel til starfsins sem hún tekur nú við. Kolaković var landsliðsþjálfari fyrir tveimur áratugum og þótti á stuttum starfstíma þá ná athyglisverðum árangri. Hin síðari ár hefur Kolaković þjálfað yngri landslið og félagslið. Hún segist nú mæta reynslunni ríkari til leiks.
Serbar unnu nauman sigur á íslenska landsliðinu á HM í lok nóvember á síðasta ári, 27:26. Serbar lögðu einnig Úrúgvæ og Spánverja, gerðu jafntefli við Færeyinga áður en botninn datt úr öllu saman í síðasta leiknum við Svartfellinga sem tapaðist með 16 marka mun, 33:17.
Stutt í fyrstu leiki Kolaković
Fyrstu leikir Kolaković með serbneska landsliðinu verða viðureignir við Svía 4. og 7. mars heima og að heiman í undankeppni EM 2026. Serbía vann tvo fyrstu leiki undankeppninnar í október gegn Úkraínu og Litáen.



