- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Spenna í B-riðli – hreinni línur í A-riðli

- Auglýsing -

Næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í handbolta 2025/26 lauk á sunnudag. Í A-riðli tryggði Metz Handball sér sæti í 8-liða úrslitum eftir sigur á BV Borussia Dortmund. Evrópumeistarar Györ hafa fyrir nokkru tryggt sér efsta sæti riðilsins og sæti í átta liða úrslitum. Eins og í Meistaradeild Evrópu þá sitja tvö efstu lið í hvorum riðli yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.

  • Storhamar hélt vonum sínum um sæti í umspili á lífi með sigri á OTP Group Budućnost og Gloria Bistrița tryggði sér fjórða sætið í A-riðli.
  • Þegar ein umferð er eftir í B-riðli enn galopin, þar sem aðeins fjögur stig skilja að fimm lið eftir að Odense Håndbold komst upp í annað sætið með sterkum seinni hálfleik gegn Ikast.
  • Víst er þó að Ikast á ekki möguleika á að ná öðru af tveimur efstu sætum riðilsins og komast þar með hjá í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.
  • FTC, CSM Búkarest, Odense Håndbold og Brest Bretagne berjast öll um tvö efstu sætin í lokaumferðinni sem fram fer næstu helgi.
  • Metz vann fjórða leikinn í röð er liðið lagði Dortmund. Metz komst jafnframt í fjórða sinn í röð beint í 8-liða úrslit beint og hafnar a.m.k. í hópi átta efstu í keppninni í tíunda skipti.
  • Anniken Obaidli með sjö mörk og Eli Marie Raasok með 45 % markvörslu leiddu Storhamar til sigurs á Budućnost og hélt þar með vonum sínum um sæti í umspili um sæti á lífi í baráttunni við Borussia Dortmund um síðasta lausa sætið.
  • Sigurinn í Svartfjallalandi batt einnig enda á átta leikja taphrinu Storhamar.
  • Gloria Bistrița stóð af sér lokasókn DVSC og fagnaði naumum sigri sem tryggði liðinu fjórða sætið í A-riðli fyrir síðustu umferðina. Danila So Delgado skoraði átta mörk.
  • Odense batt enda á þriggja leikja sigurgöngu Ikast með því að vinna liðið í annað sinn á tímabilinu. Tíu af 12 útileikmönnum Odense skoruðu a.m.k. eitt mark í leiknum.


Úrslit leikja 13. umferðar – A-riðill:
Borussia Dortmund – Metz 24:33 (12:15).
Team Esbjerg – Györi 33:28 (21:10).
Buducnost – Storhamar 22:26 (10:16).
Gloria Bistrita – DVSC Schaeffler 32:31 (16:17).

Staðan:

Györi131102428:33522
Metz131102413:33822
Esbjerg13913436:38219
Bistrita13706386:40514
DVSC13508376:39810
Dortmund13409359:4108
Storhamar133010341:3716
Buducnost131111311:4113

Úrslit leikja 13. umferðar – B-riðill:
Brest Bretagne – Sola HK 36:25 (19:12).
FTC Rail Cargo – CSM Búkarest 30:35 (15:17).
HC Podravka – Krim Mercator 24:23 (15:11).
Ikast – Odense 30:33 (16:13).

Staðan:

Brest131003439:38920
Odense13913439:39119
Búkarest13904419:37818
FTC13904398:37118
Ikast13805410:38316
Podravka13319359:4127
Krim132110335:3875
Sola130112332:4111
Ljósmynd/EPA

A-riðill – leikir síðustu umferðar:
Storhamar – Gloria Bistrita.
DVSC Schaeffler – Buducnost.
Metz – Team Esbjerg.
Györi – Borussia Dortmund.
-Leikirnir fara fram sunnudaginn 22. febrúar.

B-riðill – leikir síðustu umferðar:
Krim Mercator – Brest Bretagne.
CSM Búkarest – Ikast.
Odense – FTC Rail Cargo.
Sola HK – HC Podravka.
-Leikirnir fara fram laugardaginn 21. febrúar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -