Næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í handbolta 2025/26 lauk á sunnudag. Í A-riðli tryggði Metz Handball sér sæti í 8-liða úrslitum eftir sigur á BV Borussia Dortmund. Evrópumeistarar Györ hafa fyrir nokkru tryggt sér efsta sæti riðilsins og sæti í átta liða úrslitum. Eins og í Meistaradeild Evrópu þá sitja tvö efstu lið í hvorum riðli yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.
- Storhamar hélt vonum sínum um sæti í umspili á lífi með sigri á OTP Group Budućnost og Gloria Bistrița tryggði sér fjórða sætið í A-riðli.
- Þegar ein umferð er eftir í B-riðli enn galopin, þar sem aðeins fjögur stig skilja að fimm lið eftir að Odense Håndbold komst upp í annað sætið með sterkum seinni hálfleik gegn Ikast.
- Víst er þó að Ikast á ekki möguleika á að ná öðru af tveimur efstu sætum riðilsins og komast þar með hjá í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.
- FTC, CSM Búkarest, Odense Håndbold og Brest Bretagne berjast öll um tvö efstu sætin í lokaumferðinni sem fram fer næstu helgi.
- Metz vann fjórða leikinn í röð er liðið lagði Dortmund. Metz komst jafnframt í fjórða sinn í röð beint í 8-liða úrslit beint og hafnar a.m.k. í hópi átta efstu í keppninni í tíunda skipti.
- Anniken Obaidli með sjö mörk og Eli Marie Raasok með 45 % markvörslu leiddu Storhamar til sigurs á Budućnost og hélt þar með vonum sínum um sæti í umspili um sæti á lífi í baráttunni við Borussia Dortmund um síðasta lausa sætið.
- Sigurinn í Svartfjallalandi batt einnig enda á átta leikja taphrinu Storhamar.
- Gloria Bistrița stóð af sér lokasókn DVSC og fagnaði naumum sigri sem tryggði liðinu fjórða sætið í A-riðli fyrir síðustu umferðina. Danila So Delgado skoraði átta mörk.
- Odense batt enda á þriggja leikja sigurgöngu Ikast með því að vinna liðið í annað sinn á tímabilinu. Tíu af 12 útileikmönnum Odense skoruðu a.m.k. eitt mark í leiknum.
Úrslit leikja 13. umferðar – A-riðill:
Borussia Dortmund – Metz 24:33 (12:15).
Team Esbjerg – Györi 33:28 (21:10).
Buducnost – Storhamar 22:26 (10:16).
Gloria Bistrita – DVSC Schaeffler 32:31 (16:17).
Staðan:
| Györi | 13 | 11 | 0 | 2 | 428:335 | 22 |
| Metz | 13 | 11 | 0 | 2 | 413:338 | 22 |
| Esbjerg | 13 | 9 | 1 | 3 | 436:382 | 19 |
| Bistrita | 13 | 7 | 0 | 6 | 386:405 | 14 |
| DVSC | 13 | 5 | 0 | 8 | 376:398 | 10 |
| Dortmund | 13 | 4 | 0 | 9 | 359:410 | 8 |
| Storhamar | 13 | 3 | 0 | 10 | 341:371 | 6 |
| Buducnost | 13 | 1 | 1 | 11 | 311:411 | 3 |
Úrslit leikja 13. umferðar – B-riðill:
Brest Bretagne – Sola HK 36:25 (19:12).
FTC Rail Cargo – CSM Búkarest 30:35 (15:17).
HC Podravka – Krim Mercator 24:23 (15:11).
Ikast – Odense 30:33 (16:13).
Staðan:
| Brest | 13 | 10 | 0 | 3 | 439:389 | 20 |
| Odense | 13 | 9 | 1 | 3 | 439:391 | 19 |
| Búkarest | 13 | 9 | 0 | 4 | 419:378 | 18 |
| FTC | 13 | 9 | 0 | 4 | 398:371 | 18 |
| Ikast | 13 | 8 | 0 | 5 | 410:383 | 16 |
| Podravka | 13 | 3 | 1 | 9 | 359:412 | 7 |
| Krim | 13 | 2 | 1 | 10 | 335:387 | 5 |
| Sola | 13 | 0 | 1 | 12 | 332:411 | 1 |

A-riðill – leikir síðustu umferðar:
Storhamar – Gloria Bistrita.
DVSC Schaeffler – Buducnost.
Metz – Team Esbjerg.
Györi – Borussia Dortmund.
-Leikirnir fara fram sunnudaginn 22. febrúar.
B-riðill – leikir síðustu umferðar:
Krim Mercator – Brest Bretagne.
CSM Búkarest – Ikast.
Odense – FTC Rail Cargo.
Sola HK – HC Podravka.
-Leikirnir fara fram laugardaginn 21. febrúar.



