- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Staðfest að Viggó fari til Flensburg

- Auglýsing -

Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, verður leikmaður SG Flensburg-Handewitt frá og með sumrinu 2027 þegar samningur hans við HC Erlangen rennur sitt skeið á enda. Þetta var staðfest í samfélagsmiðlum Flensburg og HC Erlangen í morgun.


Orðrómur hefur verið uppi síðustu vikur um vistaskiptin. Viggó var seldur frá Leipzig til HC Erlangen í árslok 2024. Hefur hann sannarlega gert það gott með liðinu og er í hópi marka- og stoðsendingahæstu leikmanna deildarinnar.

Flensburg, sem er í öðru sæti þýsku 1. deildarinnar um þessar mundir, verður fimmta þýska liðið sem Viggó leikur með. Auk HC Erlangen hefur hann leikið með Leipzig, Wetzlar og Stuttgart. Eftir að Viggó kvaddi herbúðir uppeldisfélags síns, Gróttu, fyrir áratug var hann í eitt ár hjá Randers í Danmörku og í tvö ár með West Wien í Austurríki. Hann tók stökkið yfir til Þýskalands 2019 og hefur sannarlega gert það gott síðan.

Íslendingar hjá Flensburg-Handewitt:
Alexander Petersson 2007 til 2010 og aftur frá janúar 2021 og út leiktíðina um vorið.
Einar Hólmgeirsson 2007/2008.
Arnór Atlason 2012/2013.
Ólafur Gústafsson 2012 - 2014 og var í sigurliði félagsins í Meistaradeild Evrópu vorið 2014.
Teitur Örn Einarsson 2022 - 2024.
Viggó Sigurðsson tók tímabundið við þjálfun Flensburg leiktíðina 2006/2007 meðan Kent-Harry Andersson þáverandi þjálfari var í veikindaleyfi.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -